Refund policy
Skilastefna
Síðast uppfært: 23. september 2026
1. Réttur til að falla frá kaupum (14 dagar)
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur þú 14 daga til að falla frá kaupum án þess að tilgreina ástæðu. Fresturinn hefst daginn sem þú, eða aðili sem þú hefur tilnefnt, tekur við vörunni. Ef pöntun er afhent í fleiri en einni sendingu hefst fresturinn þegar síðasta varan er móttekin.
Ekki er boðið upp á lengri skilafrest. Frestur til skila er 14 dagar.
2. Hvernig skila ég vöru?
1. Tilkynntu okkur innan 14 daga frá móttöku með ótvíræðri yfirlýsingu, t.d. tölvupósti á marketing@smitten.fun. Gefðu upp pöntunarnúmer og hvaða vörum þú vilt skila. Þú getur notað staðlaða uppsagnareyðublaðið hér að neðan, en það er ekki skylt. Nægilegt er að senda tilkynninguna áður en fresturinn rennur út.
2. Sendu vöruna til baka innan 14 daga frá því að þú tilkynntir okkur um skilin. Sendu hana á:
Smitten ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Þú getur líka sent hana með Dropp samkvæmt leiðbeiningum sem við sendum þér.
3. Kostnaður: Þú greiðir beinan kostnað við að senda vöruna til baka.
3. Ástand vöru
Þú mátt skoða vöruna eins og þú myndir gera í verslun, t.d. máta flík. Varan skal vera ónotuð og óþvegin, með merkimiðum og helst í upprunalegum umbúðum.
Þú berð ábyrgð á rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eðli hennar, eiginleika og virkni. Heimilt er að draga þá rýrnun frá endurgreiðslu.
4. Endurgreiðsla
Við endurgreiðum allar greiðslur sem þú innir af hendi vegna pöntunarinnar, þar á meðal upphaflegan sendingarkostnað, innan 14 daga frá því að við fáum tilkynningu þína um skilin.
Ef þú valdir dýrari afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmátann endurgreiðum við aðeins verð ódýrasta staðlaða kostsins.
Við megum halda endurgreiðslunni eftir þar til varan hefur borist okkur eða þú hefur sýnt fram á að þú hafir sent hana, hvort sem gerist fyrr.
Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema um annað sé sérstaklega samið. Endurgreiðslan er þér að kostnaðarlausu.
5. UndantekningarRétturinn til að falla frá kaupum gildir ekki um vörur sem eru framleiddar eftir forskrift kaupanda eða eru sérsniðnar að honum (t.d. merktar með nafni).
6. Skipti
Ekki er boðið upp á sérstök vöruskipti. Viljir þú aðra stærð eða lit skaltu skila vörunni samkvæmt ofangreindu og leggja inn nýja pöntun.
7. Gallaðar vörur
Gallaðar vörur falla ekki undir 14 daga frestinn. Um þær gildir tveggja ára kvörtunarfrestur samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Hafðu samband á marketing@smitten.fun með mynd af gallanum og pöntunarnúmeri. Við greiðum allan sendingarkostnað vegna gallaðrar vöru.
Hafi röng vara verið send greiðum við einnig sendingarkostnað og sendum rétta vöru.
Staðlað uppsagnareyðublað
(Fylltu út og sendu eyðublaðið eingöngu ef þú vilt falla frá samningi.)
Til: Smitten ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, marketing@smitten.fun
Ég/við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) fell/föllum (*) frá samningi mínum/okkar (*) um
kaup á eftirfarandi vöru (*):
Pantað þann (*) / móttekið þann (*):
Pöntunarnúmer:
Nafn neytanda/neytenda:
Heimilisfang neytanda/neytenda:
Undirskrift neytanda/neytenda (einungis ef eyðublaðið er sent á pappír):
Dagsetning:
(*) Strikið út það sem á ekki við.Return Policy
Last updated: 23 September 2026
1. Right of withdrawal (14 days)
Under Act No. 16/2016 on Consumer Contracts, you have 14 days to withdraw from your purchase without giving a reason. The period starts on the day you, or a person you nominate, receive the goods. If your order arrives in several shipments, it starts when you receive the last item.
We do not offer an extended return period. The return period is 14 days.
2. How to return an item
1. Tell us within 14 days of receipt with a clear statement, for example an email to marketing@smitten.fun. Include your order number and which items you are returning. You may use the standard withdrawal form below, but you don't have to. Sending your notice before the period ends is enough.
2. Send the item back within 14 days of telling us. Send it to: Smitten ehf., Katrínartún 2, 105 Reykjavík, Iceland. You can also send it via Dropp using the instructions we send you.
3. Cost: You pay the direct cost of returning the item.
3. Condition of items
You may handle the item as you would in a shop, for example trying on a garment. It must be unworn and unwashed, with tags attached and preferably in its original packaging.
You are liable for any loss in value caused by handling beyond what is necessary to establish the item's nature, characteristics and functioning. We may deduct that amount from your refund.
4. Refunds
We refund all payments received for the order, including the original delivery cost, within 14 days of receiving your withdrawal notice.
If you chose a more expensive delivery option than the cheapest standard one, we refund only the cost of the cheapest standard option.
We may withhold the refund until we have received the item back, or you have shown proof that you sent it, whichever comes first.
Refunds go to the original payment method unless we expressly agree otherwise. You will not be charged any fee for the refund.
5. Exceptions
The right of withdrawal does not apply to items made to your specifications or clearly personalised (e.g. with a name).
6. Exchanges
We do not offer direct exchanges. If you want a different size or colour, return the item as described above and place a new order.
7. Defective items
Defective items are not subject to the 14-day period. You have two years to report a defect under
Act No. 48/2003 on Consumer Sales. Contact marketing@smitten.fun with a photo of the defect and your order number. We pay all shipping costs for defective items.
If we sent you the wrong item, we also pay shipping and send you the correct one.
Standard withdrawal form (Complete and return this form only if you wish to withdraw from the contract.)
To: Smitten ehf., Katrínartún 2, 105 Reykjavík, Iceland, marketing@smitten.fun
I/We (*) hereby give notice that I/We (*) withdraw from my/our (*) contract of sale of the following goods (*):
Ordered on (*) / received on (*):
Order number:
Name of consumer(s):
Address of consumer(s):
Signature of consumer(s) (only if this form is sent on paper):
Date:
(*) Delete as appropriate.