Terms of service

Skilmálar

Síðast uppfært: 23. september 2026

1. Almennt

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum í vefversluninni shop.smitten.fun („vefverslunin“). Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi skilmálana. Skilmálarnir, ásamt pöntunarstaðfestingu, teljast samningur milli kaupanda og seljanda.

Kaupandi telst vera neytandi í skilningi laga nr. 16/2016 um neytendasamninga og laga nr. 48/2003 um neytendakaup, nema annað komi fram. Ákvæði skilmálanna skerða í engu lögbundinn rétt neytenda.

Skilmálarnir eru gefnir út á íslensku og ensku. Komi upp misræmi gildir íslenska útgáfan.

2. Upplýsingar um seljanda

Nafn

Smitten ehf.

Kennitala

681218-0680

Heimilisfang

Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

VSK-númer

134522

Netfang

marketing@smitten.fun

Sími 848 3845



3. Pöntun og samningsgerð

Samningur kemst á þegar kaupandi hefur lokið greiðslu og fengið senda pöntunarstaðfestingu í tölvupósti. Kaupanda ber að ganga úr skugga um að upplýsingar í pöntun, svo sem nafn, netfang, símanúmer og afhendingarstaður, séu réttar.

Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pöntun, til dæmis ef vara er uppseld, ef verð var augljóslega rangt skráð eða ef grunur leikur á misnotkun eða svikum. Í slíkum tilvikum er kaupanda tilkynnt um það og hann fær greiðslu sína endurgreidda að fullu.

4. Verð

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda 24% virðisaukaskatt.

Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í vöruverði. Hann er ókeypis á pöntunum yfir 10.000 kr., en annars bætist hann við í greiðsluferlinu og kemur skýrt fram áður en pöntun er staðfest.Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og leiðrétta augljósar villur í verði, vörulýsingum og myndum. Verðbreytingar hafa ekki áhrif á pantanir sem þegar hafa verið staðfestar.

5. Greiðsla

Hægt er að greiða með greiðslukortum (Visa og Mastercard) í gegnum greiðslugátt Teya. Greiðsla er skuldfærð þegar pöntun er staðfest.

Seljandi fær aldrei aðgang að kortanúmerum. Öll greiðsluvinnsla fer fram í dulkóðuðu umhverfi Teya.

6. Afhending

Vörur eru eingöngu sendar innanlands, með Dropp. Nánari upplýsingar um afhendingarmáta, afhendingartíma og sendingarkostnað eru í Sendingarskilmálum.

Áhættan af vörunni flyst til kaupanda þegar hann, eða aðili sem hann hefur tilnefnt, hefur tekið við henni.

7. Skilaréttur

Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupum án þess að tilgreina ástæðu, í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Nánari upplýsingar og staðlað uppsagnareyðublað eru í Skilastefnu.

8. Gallar og kvartanir

Um galla fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Kaupandi hefur tveggja ára frest frá móttöku vöru til að tilkynna um galla. Tilkynna skal um galla innan hæfilegs tíma eftir að kaupandi varð hans var, á netfangið marketing@smitten.fun, helst ásamt mynd af gallanum og pöntunarnúmeri.

Reynist vara gölluð á kaupandi rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða riftun kaupa, eftir því sem lög kveða á um. Seljandi greiðir allan sendingarkostnað vegna gallaðrar vöru.

Það telst ekki galli ef vara skemmist vegna rangrar meðferðar eða ef ekki er farið eftir þvottaleiðbeiningum, né eðlilegt slit.

9. Hugverkaréttur

Allt efni vefverslunarinnar, þar á meðal vörumerki, myndir, texti og hönnun, er eign Smitten ehf. eða notað með leyfi rétthafa. Óheimilt er að afrita, dreifa eða nota efnið í viðskiptalegum tilgangi án skriflegs leyfis.

10. Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar í samræmi við Persónuverndarstefnu Smitten ehf., lög nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Upplýsingar eru aldrei seldar þriðja aðila.

11. Ábyrgðartakmörkun Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til atvika sem hann hefur ekki stjórn á (force majeure), svo sem náttúruhamfara, verkfalla, bilana hjá flutningsaðilum eða truflana á netþjónustu. Þetta ákvæði takmarkar ekki lögbundinn rétt neytenda.

12. Breytingar á skilmálum

Seljandi getur breytt skilmálunum. Nýjasta útgáfan er ávallt aðgengileg í vefversluninni. Um hverja pöntun gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar pöntunin var gerð.

13. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Kaupandi og seljandi skulu fyrst reyna að leysa ágreining sín á milli.

Takist það ekki getur kaupandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (kvth.is). Rísi mál vegna samningsins skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, nema lög kveði á um annað.Terms of Service

Last updated: 23 September 2026

1. General

These terms apply to purchases from the online store shop.smitten.fun (the "store"). By confirming an order, the buyer accepts these terms. The terms and the order confirmation together form the contract between buyer and seller.

The buyer is a consumer within the meaning of Act No. 16/2016 on Consumer Contracts and Act

No. 48/2003 on Consumer Sales, unless stated otherwise. Nothing in these terms limits consumers' statutory rights.

These terms are published in Icelandic and English. If the two versions conflict, the Icelandic version prevails.

2. Seller information

Name Smitten ehf.

Company ID (kennitala) 681218-0680

Address Katrínartún 2, 105 Reykjavík, Iceland

VAT no. 134522

Email marketing@smitten.fun

Phone +354 848 3845

3. Orders and contract formation

A contract is formed when the buyer has completed payment and received an order confirmation by email. The buyer is responsible for making sure the order details are correct, including name, email, phone number and delivery point.

The seller may cancel an order, for example if an item is sold out, a price was obviously listed in error, or misuse or fraud is suspected. If that happens, the buyer is notified and receives a full refund.

4. Prices

All prices are in Icelandic krónur (ISK) and include 24% VAT. Shipping is not included in product prices. It is free on orders over 10,000 ISK; otherwise it is added at checkout and shown clearly before the order is confirmed.The seller may change prices without notice and may correct obvious errors in prices, product descriptions and images. Price changes do not affect orders that have already been confirmed.

5. Payment

Payment is by card (Visa and Mastercard) through Teya's payment gateway. The card is charged when the order is confirmed.

The seller never has access to card numbers. All payment processing takes place in Teya's encrypted environment.

6. Delivery

We ship within Iceland only, via Dropp. Delivery options, times and costs are described in the Shipping Policy.

Risk passes to the buyer when the buyer, or a person they have nominated, takes possession of the goods.

7. Right of withdrawal

The buyer has 14 days from receiving the goods to withdraw from the purchase without giving a reason, under Act No. 16/2016. See the Return Policy for details and the standard withdrawal form.

8. Defects and complaints

Defects are governed by Act No. 48/2003 on Consumer Sales. The buyer has two years from receipt to report a defect. Report it within a reasonable time after discovering it, to marketing@smitten.fun, ideally with a photo and your order number.

If an item is defective, the buyer is entitled to repair, replacement, a price reduction or cancellation, as provided by law. The seller pays all shipping costs for defective goods.

Damage caused by misuse or by not following care instructions is not a defect, and neither is normal wear and tear.

9. Intellectual property

All content in the store, including trademarks, images, text and design, belongs to Smitten ehf. or is used under licence. It may not be copied, distributed or used commercially without written permission.

10. Privacy

Personal data is handled in line with Smitten ehf.

's Privacy Policy, Act No. 90/2018 and Regulation

(EU) 2016/679 (GDPR). Personal data is never sold to third parties.11. Limitation of liability

The seller is not liable for loss caused by events outside its control (force majeure), such as natural disasters, strikes, carrier failures or internet outages. This does not limit consumers' statutory rights.

12. Changes to these terms

The seller may change these terms. The current version is always available in the store. Each order is governed by the terms in force when it was placed.

13. Governing law and disputes

These terms are governed by Icelandic law. Buyer and seller should first try to resolve any dispute between themselves.

If that fails, the buyer can refer the matter to the Consumer Complaints Board (Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, kvth.is). Court proceedings arising from the contract are brought before the

Reykjavík District Court (Héraðsdómur Reykjavíkur), unless the law provides otherwise.